Borðaði demantshring



  • Prenta
  • Senda frétt

Maður er í haldi lögreglunnar í Windsor í Kanada, grunaður um að hafa gleypt demantshring sem er metinn á meira tvær og hálfa milljón króna. Hann sást á öryggismyndavél í skartgripaverslun þar sem hann virtist skipta á hringnum og eftirlíkingu.

Maðurinn stakk síðan alvöru hringnum upp í sig og gleypti. Hann hefur nú verið í haldi í viku og er látinn borða trefjaríka fæðu í fangelsinu en hringurinn hefur enn ekki skilað sér. Að sögn lögreglu er maðurinn samvinnufús og vill ljúka málinu sem allra fyrst.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku