Dettifoss vekur mikla athygli

Flokkar: Innlent, Mannlíf


  • Prenta
  • Senda frétt

Stórmyndir á borð við Prometheus eru landkynning sem varir í ár og jafnvel áratugi. Þetta segir Leifur Dagfinnsson, framleiðandi hjá framleiðsfyrirtækinu True North. Dettifoss hefur náð augum erlendra kvikmyndagerðarmanna.

Kvikmyndin Prometheus eftir breska leikstjórann Ridley Scott  verður frumsýnd á miðvikudaginn en hún var að tekin upp hér á landi síðasta sumar, bæði við Heklu og Dettifoss. Leifur Dagfinnsson hjá framleiðslufyrirtækinu True North, sem hafði veg og vanda af komu tökuliðsins, telur stórmyndir á borð við Prometheus vera mikla landkynningu.„ Svona landkynningu fyrir Ísland er eiginlega ekki hægt að meta til fjár því hún varir í ár og áratugi, sérstaklega þegar þetta eru þekktar myndir eftir þekkta leikstjóra með þekktum stjörnum, að ég tala nú ekki um mynd eins og Prometheus eftir Ridley Scott sem beðið er eftir með mikilli eftirvæntingu.“

Stiklur úr Prometheus hafa vakið athygli á netinu og myndskeið af Dettifossi hafa orðið til þess að erlendir kvikmyndagerðarmenn vilja koma og nýta fossinn enn frekar fyrir hvíta tjaldið.„Við höfum nú þegar fengið fyrirspurnir af því að fólk hefur verið að sjá þetta í myndbútum á netinu og annars staðar.

Þrjú stór verkefni frá Hollywood eru væntanleg hingað til lands á þessu ári, meðal annars Oblivion, nýjasta kvikmynd Tom Cruise og Noah með Russell Crowe í aðalhlutverki. Vinna við þær myndir er þegar hafinn en Leifur segir að erlendir kvikmyndagerðarmenn séu jafnvel farnir að sækja innblástur til Íslands.„Ég man að ein af þessum myndum, sem tekinn verður upp hér á landi í sumar, að þá var Ísland skrifað inní handrit myndarinnar eftir gosið í Eyjafjallajökli.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku