Eldur í Frú Láru á Seyðisfirði

Slökkviliðsmenn ljúka við að slökkva eld í veitingahúsinu Frú Láru á Seyðisfirði. Hér má horfa á myndir af vettvangi og viðtal Rúnars Snæs Reynissonar við Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum á Austurlandi.
Mikill eldur blossaði upp í veitingahúsinu Frú Láru á Seyðisfirði í kvöld. Einn maður var í húsinu og komst af sjálfsdáðum út um glugga. Húsið er stórskemmt.
Slökkvilið var kallað á staðinn um klukkan átta í kvöld og kom einnig slökkvilið frá Egilsstöðum. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Seyðisfirði og Egilsstöðum voru einnig kallaðar út. Eldurinn hefur verið slökktur en vakt verður við húsið í nótt. Rannsókn á eldsupptökum er á frumstigi en talið er að kviknaði hafi í út frá rafmagni.
Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna á Austurlandi, segir að viðbúnaður hafi verið mikill enda eldurinn mikill í fyrstu og óttast hafi verið að hann bærist í gömul nærliggjandi timburhús. ,,Það var að myndast mjög mikill eldur í húsinu og hafði gerst á stuttum tíma. Fyrstu upplýsingar sem ég fékk voru þær að það væri mikil hætta á ferðum og þess vegna var allt kallað út á Egilsstöðum. En strákarnir hérna á Seyðisfirði náðu tökum á þessu undrafljót og sýndu að þeir kunna til verka," segir Baldur. ,,Til að komast fyrir eldinn þurfti að rífa niður klæðningar alveg upp í ris. Eldurinn fór úr kjallaranum og alveg upp í ris en þetta er þriggja hæða hús. Sem betur fer þá tókst þeim þetta strákunum."
Aðstæður til slökkvistarfs voru ágætar á Seyðisfirði í kvöld og lítill vindur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













