Erfðabreytt hveiti
Fyrst birt: 17.05.2012 23:25, Síðast uppfært: 23.05.2012 11:40

Í þættinum er rætt við Guðbjörgu Ingu Aradóttur líffræðing sem starfar við erfðafræðitilraunir við landbúnaðarháskóla á Bretlandi. Búið hefur verið til nýtt afbrigði hveitiplöntunnar sem fælir burt blaðlýs með náttúrlegum aðferðum. En andstæðingar erfðabreytinga hóta skemmdarverkum.
Þeir hyggjast eyðileggja tilraunareiti vísindamannanna 27. maí og vísindamennirnir hafa þess vegna útbúið myndband þar sem málið er útskýrt og aðgerðarsinnarnir beðnir að hugsa sinn gang enda sé þetta vísindaverkefni. Auk þess sé útlit fyrir að afbrigði sem þetta af hveitiplöntunni geti dregið úr þörfinni fyrir eiturefni á ökrum bænda og einnig dregið úr olíunotkun í hveitirækt. Guðbjörg Inga lærði líffræði við Háskóla Íslands en stundaði framhaldsnám í Bretlandi þar sem hún býr nú. Þá er líka í þættinum rætt við Þorleif Eiríksson, dýrafræðing og forstöðumann Náttúrustofu Vestfjarða, um þverun fjarða með vega- og brúargerð, hvaða áhrif slíkar framkvæmdir geta haft á lífríkið og mismunandi áhrif eftir því hvar er þverað og hvernig. Fluttar eru líka fréttir af vísindum eins og venjan er í þættinum
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













