Evróvisjónfarar tóku lagið-myndband

Flokkar: Innlent, Mannlíf


  • Prenta
  • Senda frétt

Rífandi stemming var í Mosfellsbæ í dag á sérstökum kveðjutónleikum fyrir Júróvisionfarana. 2000 leik- og grunnskólabörn komu til að hlusta á Grétu og Jónsa taka lagið og börnin tóku hressilega undir.

Það hellirigndi þegar fyrstu börnin komu á tónleikana og leituðu þau skjóls í þjónustukjarnanum á móti torginu.  Þá kom í ljós að fleiri voru búnir að æfa evróvisionlagið en Gréta og Jónsi.

Heilmikill undirbúningur hefur verið hjá Evróvisionförunum og eru þau í óða önn að pakka niður í ferðatöskurnar. Jónsi segist halda sig þurfa að vera með 17 alklæðnaði með sér þarna úti og hann sé búin að vera safna því saman hægt og rólega.


Gréta segir að ef hann þurfi að vera með 17 þurfi hún að vera með helmingi fleir.  Það sé nátturlega ekki það sem skipti  höfuðmáli þarna úti, en auðvitað þurfi þau að koma vel fyrir og vera landi og þjóð til sóma.  Það sem skipti mestu máli sé að lagið komist til skila og maður viti nákvæmlega hvað maður sé að fara að gera.

Um leið og Gréta og Jónsi birtust á sviðinu stytti upp og var rífandi stemning hjá krökkunum sem tóku hressilega undir. Hópurinn fer út í fyrramálið og verður fyrsta æfing á sunnudaginn. Fyrri undankeppnin verður svo 22. maí og eru Jónsi og Gréta önnur á svið.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku