Fá að ræða við Martinez



  • Prenta
  • Senda frétt

Breskir fjölmiðlar greina frá því að enska úrvaldsdeildarliðið Liverpool hafi fengið leyfi til að ræða við Roberto Martinez, knattspyrnustjóra Wigan.

Liverpool rak í vikunni  Kenny Dalglish eftir lélegt gengi í úrvalsdeildinni og leitar nú að eftirmanni hans. Breska ríkisútvarpið greinir frá því í kvöld að félagið hafi hug á því að ræða við Brendan Rodgers, knattspyrnustjóra Swansea. Þá er talið að Liverpool muni einnig leitast eftir því að ræða við Andres Villas-Boas, fyrrum stjóra Chelsea og hugsanlega Rafael Benitez, fyrrum knattspyrnustjóra Liverpool, Inter Milan og Valencia.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku