Ekki eftir neinu að bíða
Fyrst birt: 02.07.2012 21:16, Síðast uppfært: 02.07.2012 21:16
Flokkar: Forsetakosningar 2012, Síðdegisútvarpið

Ekkert vit er í því að breyta stjórnarskrá landsins í bullandi ágreiningi og sundrungu sagði Ólafur Ragnar Grímsson, ný endurkjörinn forseti Íslands í hádegisfréttum okkar á RÚV.
Við þingkosningar í vor viti ekki nokkur maður hver verði stjórnskipuleg staða löggjafasamkomunnar og forsetans. Er þetta raunin? Við ræddum við Björgu Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is









