Haukar skoruðu 31 mark í bikarnum



  • Prenta
  • Senda frétt

Leikið var í bikarkeppni KSÍ í kvöld og unnu Haukar 31-0 sigur á Snæfelli þar sem Viktor Smári Segatta skoraði tíu mörk fyrir Hauka og Enok Eiðsson sex mörk.

Haukar leika í 1. deildinni í sumar en Snæfell í C-riðli 3. deildar. 1. deildar liðin Víkingur Reykjavík, Víkingur Ólafsvík, KA, Höttur, Leiknir og Þróttur Reykjavík komust öll áfram en ÍR er úr leik eftir tap gegn Njarðvík.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku