Trabant og alls kyns tól!

Daníel Geir mátaði Trabantinn.


  • Prenta
  • Senda frétt

Helgarvaktina stóðu þau Hulda G. Geirsdóttir og Daníel Geir Moritz í dag. Þau komu víða við, m.a. á sýningunni Heimilið og garðurinn í Smáranum í Kópavogi.

Þar kynnti Daníel sér ýmis konar tól og tæki, s.s. garðpíramída, nuddpúða, heita potta og mátaði forláta Trabant bíl sem boðin verður upp á sýningunni. 
Fluttar voru fréttir af íslensku Evróvisjón förunum sem voru komnir hálfa leið til Baku og nýtt lag Elízu Newman var alheims frumflutt, ljómandi skemmtilegur sumarsmellur sem heitir Stjörnuryk. Þá rýndu þáttarstjórnendur aðeins í enska boltanna, sumarlög og alls kyns tónleika sem fram fara í kvöld, svo ekki sé minnst á alla laufléttu laugardagstónana sem fengu að óma.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku