Hjónin úrskurðuð í varðhald til 18. júní

Foreldrarnir á blaðamannafundi þegar þau svöruðu spurningum um brunann. Mynd: Nordic Photos/AFP
Bresk hjón sem grunuð eru um að hafa kveikt í íbúðarhúsi í Derby og orðið sex börnum sínum að bana voru í dag úrskurðuð í gæsluvarðhald þar til mál þeirra verður tekið fyrir 18. júní.
Eldur kom upp í húsi hjónanna aðfaranótt 11. maí síðastliðins. Fimm börn þeirra dóu í eldsvoðanum og hið sjötta á sjúkrahúsi þremur dögum síðar. Á fréttavef BBC kemur fram að við rannsókn á eldsvoðanum kviknaði grunur um að eldurinn hafi komið upp nálægt útidyrum hússins og að bensín hafi verið notað til að glæða hann. Talið er að hjónin hafi þá verið utan dyra. Rannsókn málsins er ekki lokið. Lögreglan í Derbyskíri hefur því óskað eftir því að allir sem telja sig hafa einhverjar upplýsingar um málið gefi sig fram. Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær börnin verða jarðsett. Fjársöfnun er hafin í Derby fyrir útfararkostnaðinum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













