Íslendingur vann nektarhlaupið

Pétur Geir Grétarsson vann nektarhlaupið í Hróarskeldu í dag. Skjáskot af vef Politiken.
Íslendingur sigraði í nektarhlaupinu í Hróarskeldu í Danmörku í ár. Þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingur vinnur hlaupið. Hlaupið fór fram eftir hádegi í dag.
Íslendingurinn Pétur Geir Grétarsson, 22 ára, vann nektarhlaupið á tónlistarhátíðinni í Hróarskeldu í dag. „Þetta er besti dagurinn í lífi mínu. Þetta var alveg frábært," sagði hann ánægður við danska fréttavefinn Politiken.dk stuttu eftir hlaupið.
Þúsund áhorfendur
Nektarhlaupið var skipulagt af útvarpsstöðinni á Hróarskeldu hátíðinni og komu um þúsund hátíðargestir til að fylgjast með hlaupinu í rigningunni. Hlaupararnir voru samtals átján talsins.
Danskur maður, Hans Kristian Andersen, hefur unnið hlaupið í þrjú ár í röð en hann er fyrrverandi Danmerkur meistari í 400 metra hlaupi. Í fréttinni hjá Politiken.dk kemur fram að sigur Péturs Geirs hafi komið á óvart en ekki kemur fram hvort danski hlauparinn hafi verið með í hlaupinu að þessu sinni.
Spúlaðir að neðan
Hins vegar kemur fram að hlaupið hafi ekki verið gert keppendunum auðvelt því að vatnskerfi hafi verið lagt á hlaupabrautina þannig að þeir hafi verið spúlaðir að neðan meðan á hlaupinu stóð.
Pétur Geir sigraði í karlaflokki en sænsk kona, Evelina, vann í kvennaflokki. Í verðlaun fá þau meðal annars ókeypis aðgang á tónlistarhátíðina á næsta ári, að sögn Danmarks Radio.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













