Rekinn fyrir ummæli um konur

Flokkar: Erlent
Kvenkyns blaðamenn í Sádí Arabíu fengu nýlega leyfi til að fjalla um íþróttaviðburði karla. Mynd: AFP


  • Prenta
  • Senda frétt

Sheikh al Obeikan, einn nánasti og íhaldssamasti ráðgjafi sádí-arabísku konungsfjölskyldunnar, hefur verið rekinn fyrir ummæli sem hann lét falla um konur á dögunum. Svo virðist sem harðlínumönnum í innsta hring konungsins fari fækkandi.

Sádí-Arabía hefur lengi verið eitt íhaldssamasta samfélag múslima í heiminum og konur njóta þar fárra réttinda. Abdúlla konungur þykir þó hafa fikrað sig í umbótaátt á valdatíð sinni. Í fyrra öðluðust konur kosninga- og framboðsrétt í sveitastjórnarkosningum og ráðamenn hafa opinberlega rætt um að veita konum ökuréttindi. Þá hafa verið sett lög sem banna heimilisofbeldi og dregið hefur verið lítillega úr aðskilnaði kynjanna á opinberum stöðum.

En meira að segja þessi litlu skref hafa farið fyrir brjóstið á íhaldssömum klerkum og harðlínumönnum. Þeir hafa mótmælt breytingunum og vara meðal annars við því að ökuréttindi muni leiða til klámvæðingar og leiða konur inn á braut vændis, samkynhneigðar og hjónaskilnaða.

Sheikh al Obeikan, sem hefur verið mikilvægur ráðgjafi kóngsins til margra ára, er meðal þeirra sem hafa barist gegn breytingunum og á dögunum gagnrýndi hann konungsfjölskylduna undir rós. Hann sagði að áhrifamiklir menn í sádí-arabísku samfélagi væru að reyna að breyta náttúrulegri þjóðfélagsstöðu kvenna og innleiða veraldleg lög í stað þeirra íslömsku. Ummælin vöktu hörð viðbrögð og Obeikan hefur verið harðlega gagnrýndur af ríkisfjölmiðlum síðustu daga.

Nú virðist hann endanlega hafa verið settur út af sakramentinu en engra skyndilegra breytinga er þó að vænta í Sádí-Arabíu því ljóst er að hann var langt því frá síðasti harðlínumaðurinn í konungshöllinni.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku