Segir tapið 8 milljarða en ekki 480

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.

Heildartap lífeyrissjóðanna var átta milljarðar króna en ekki 480 milljarðar eins og fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna. Þetta segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands.

Framsetning skuldanna sé villandi, en skýrsla nefndarinnar sé þó mjög góð og í henni ábendingar sem taka beri alvarlega. Nefndin ákvað að takmarka skoðun sína eingöngu við tap lífeyrissjóðanna en ekki tekjur.

„Ég ákvað einfaldlega að taka þessar upplýsingar frá nefndinni og setja þær fram með sama hætti eins og tapið og þá kemur í ljós að lífeyrissjóðirnir voru á sama tíma að haganst vegna til dæmis vaxtatekna og gengismunar um sem svarar til 472 milljarða. Þannig að heildartapið, ef maður tekur bæði tekjur og gjöld, er 8 milljarðar en ekki 480,“ segir Gylfi. Framsetningin í skýrslunni sé villandi.

 „Mér finnst að nefndin hefði átt að halda áfram og meta fjárfestingastefnuna í heild sinni og draga þá líka fram styrkleika þessarar fjárfestingarstefnu.“ Það sé stefnan í heild sinni sem hafi komið í veg fyrir að lífeyrissjóðirnir lentu í sama kerfishruni og allar fjármálastofnanir í landinu.

„En ég ítreka það að mér finnst skýrslan mjög góð og það eru verðmætar ábendingar í henni sem við verðum að taka alvarlega.“

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku