Uppnám vegna ummæla Obama

Barack Obama Bandaríkjaforseti við athöfnina í Hvíta húsinu í gærkvöld. Mynd:Nordic Photos/AFP


  • Prenta
  • Senda frétt

Uppnám er í Póllandi vegna ummæla eða mismæla Baracks Obama Bandaríkjaforseta við athöfn í Hvíta húsinu í gærkvöld. Obama var þá að veita Frelsisorðuna svonefndu, en meðal þeirra sem fékk hana var pólski andspyrnuforinginn Jan Karski, sem lést fyrir 12 árum.

Obama fjallaði um útrýmingarbúðir nasista í Póllandi og sagði þær pólskar, sem fór fyrir brjóstið á ráðamönnum í Varsjá. Talsmaður Obama sagði að forsetinn hefði mismælt sig og harma það, en Pólverjar sætta sig ekki við það. Donald Tusk, forsætisráðherra, kvaðst vilja sjá frekari viðbrögð frá Bandaríkjaforseta en bara það að hann harmaði ummæli sín, en Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, kvaðst vilja formlega afsökunarbeiðni frá Obama.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku