Vorverk á Mýrdalsjökli

Ellefu metra þykkt lag af ís og snjó er komið ofan á öskuna sem féll úr Grímsvatnagosinu í fyrra á sunnanverðan Mýrdalsjökul. Þetta sýna borkjarnar sem teknir voru í árlegri vorferð Jöklarannsóknarfélagsins í síðustu viku.
Vorferðin er alltaf farin um miðjan maí, meðal annars til að fylgjast með afkomu Mýrdalsjökuls, hvort rekstrarniðurstaðan, ef svo má segja, sé jákvæð eða neikvæð.
Björn Oddson, jarðfræðingur, hjá jarvísindastofnun Háskóla íslands, segir að búið sé að bora í gegnum vetrarlagið, um 11 metra, þar megi finna öskulagið úr Grímsvatnagosinu í lok maí á síðasta ári.
Sem þýðir að ákoman á þessum stað, á suðurhluta jökulsins, hefur verið ellefu metrar frá því í maí í fyrra. Það er reyndar yfir meðallagi. Öskulagið er greinilegt í borkjarnanum sem kemur upp.
Í vorferðinni var ekki aðeins fylgst með ákomu á jökulinn. Með íssjármælingum voru skoðaðir einstakir katlar í Kötluöskju, þaðan sem hlaupið í Múlakvísl kom í fyrra og þarna voru líka veðurfræðingar - með litlar flugvélar.
Ólafur Rögnvaldssson, veðurfræðingur hjá Belgingi, segir að verið sé að mæla prófíl upp í andrúmsloftið, vindhraða, stefnu, hita raka og þrýsting til að bæta veðurspár í rauntíma.
Sem nýtast meðal annars almannavörnum og björgunarsveitum, sem kallaðar eru út með litlum sem engum fyrirvara. Það var hins vegar ekkert að veðrinu þennan dag á Mýrdalsjökli. Í vestri gengu skýin yfir Eyjafjallajökul og sólin varpaði sérstakri birtu á austurhlíðar gígins þar sem aska og vikur gengu upp fyrir tveimur árum
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













