
Í þættinum er rakin saga björgunarmanna sem fóru í Héðinsfjörð að bjarga líkamsleifum þeirra sem fórust með TF ISI í Hestfjalli við Héðinsfjörð 29. maí 1947. Rætt er við Magnús Stefánsson, rafvirkjameistara, Þorstein M. Einarsson, sjómann, Birgi Schiöth, Harald Magnússon, Dúa Björnsson, Pétur Sigurgeirsson, biskup og séra Sigríði Guðmarsdóttur í Ólafsfirði.
Umsjón: Yngvi Kjartansson.
Lesari: Gestur Einar Jónasson. Frá 1997.
(Aftur á laugardag)
Tilkynna um bilaða upptöku