25.10.2012

30. maí 2012 hætti norska fjarskiptafyrirtækið Telenor að senda dagskrá Ríkisútvarpsins - Sjónvarpsins, Rásar 1 og Rásar 2, í gegnum THOR-5. Í staðinn var sent í gegnum THOR-6. Nú hefur komið í ljós að dreifing THOR-6 á Íslandi er ekki jafn góð og THOR-5. Það er minni styrkur á sendingu frá THOR-6. Því hefur Telenor samþykkt að færa útsendingar RÚV aftur yfir á THOR-5. Notandi þarf að gera eftirfarandi breytingar á stillingu í gervihnattaviðtæki til að ná THOR-5 útsendingum. Ekki þarf að breyta stillingu móttökudisks.
Nýjar stillingar:
Satellite: Thor 5
Transponder: C12
Downlink frequency: 11389 MHz
Downlink polarisation: Horisontal
Symbol rate: 24,5 Msym/sec
Forward Error Correction: 7/8
DVB-S, QPSK
Bent er á söluaðila gervihnattaviðtækja til frekari aðstoðar við stillingar. Dreifingu dagskrár RÚV um THOR-6 verður hætt 17. Desember n.k.

23.05.2012
30. maí 2012 hættir norska fjarskiptafyrirtækið Telenor að senda dagsrká Ríkisútvarpsins - Sjónvarpsins, Rásar 1 og Rásar 2, í gegnum THOR-5. Í staðinn verður sent í gegnum THOR-6.
Notandi þarf að gera smá breytingar á stillingu í gervihnattaviðtæki til að ná THOR-6 útsendingum.
Ekki þarf að breyta stillingu móttökudisks.
Bent er á söluaðila gervihnattaviðtækja til frekari aðstoðar við stillingar.
Stillingar:
Old settings:
Satellite: Thor 5
Transponder: C13
Downlink frequency: 11403 MHz
Downlink polarisation: Vertical
Symbol rate: 24,5 Msym/sec
Forward Error Correction: 7/8
DVB-S, QPSK
New settings:
Satellite: Thor 6
Transponder: A02
Downlink frequency: 10716 MHz
Downlink polarisation: Horisontal
Symbol rate: 24,5 Msym/sec
Forward Error Correction: 7/8
DVB-S, QPSK
MUNA AÐ VISTA UPPLÝSINGAR!
28.03.2012
Telenor hefur tilkynnt um færslu á sendingum RÚV milli gervihnatta. Sendingar RÚV hefjast á Thor 6 á morgun, 29. mars. 2012, en sendingum á RÚV á Thor 5 verður haldið áfram til 30 maí n.k.
1. febrúar 2007 var skrifað undir samning við norska fjarskiptafyrirtækið Telenor um sendingar Ríkisútvarpsins - Sjónvarpsins, Rásar 1 og Rásar 2, til dreifbýlissvæða á landinu og næstu miða um Thor II gervihnöttinn.
Verkefnið var unnið á vegum stjórnar fjarskiptasjóðs, sem greiðir kostnaðinn, og skrifuðu Friðrik Már Baldursson, formaður fjarskiptasjóðs, og Páll Magnússon útvarpsstjóri undir samninginn ásamt Cato Halsaa, forstjóra Telenor, að viðstöddum Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra.
Stjórn fjarskiptasjóðs leitaði samstarfs við Ríkisútvarpið um verkefnið og óskað var eftir aðstoð Ríkiskaupa við undirbúning og framkvæmd samningskaupaferils. Verkið var ekki útboðsskylt þar sem það fellur ekki undir lög um opinber innkaup eða innkaupatilskipanir. Valdir voru í september síðastliðnum 9 aðilar til þátttöku og gefinn frestur fram í nóvember til að senda tilboð. Tilboð bárust frá Eutelsat, Intelsat og Telenor. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er kringum 150 milljónir króna á næstu þremur árum.
Nauðsynlegt þykir að sjófarendur og íbúar strjálbýlli svæða sem ekki njóta í dag fullnægjandi þjónustu eigi möguleika á að ná stafrænt í gegnum gervihnött sjónvarpsdagskrá RÚV og dagskrá Rásar 1 og Rásar 2.
Til að ná sendingunum þarf gervihnattadisk, sem er 90-120 sentimetra í þvermál og stilla þarf hann nákvæmlega í átt til gervihnattarins Thor 5, sem er á 0,8 gráðum vestur yfir sjóndeildarhring, en nokkuð breytilegt eftir hvar er á landinu.
Útsendingarnar verða í upphafi samkvæmt DVB-S/MPEG-2 staðli, en áskilið er á samningstímabilinu, sem er 3 ár, að mögulegt verði að skipta yfir í útsendingar skv. DVB-S2/MPEG-4 staðalinn. Við diskloftnetið þarf gervihnattaviðtæki, sem tekið getur við þessum sendingum, og viðtækið þarf að hafa rauf fyrir aðgangskort skv. Conax myndlyklakerfinu, því útsendingarnar verða í læstri dagskrá vegna rétthafasamninga RÚV. Gervihnatta disk og viðtæki, ásamt uppsetningu og þjónustu þurfa neytendur að kaupa á almennum markaði, en aðgangskort verður hægt að fá hjá Ríkisútvarpinu.
Grunnupplýsinga um viðtökubúnað og uppsetningu hans er að vænta í næstu viku á vefsíðunni http://www.fjarskiptahandbokin.is/ og jafnframt er stefnt að samvinnu við SART, Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði um upplýsingagjöf um viðurkennda uppsetningaraðila gervihnattabúnaðar á síðunni http://www.sart.is/
Útsendingar hófust í byrjun apríl.